Anna Ólafsdóttir Björnsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það eru til fleiri sérfræðingar en þeir sem hv. 17. þm. Reykv. vitnar til og það eru ekki allir á einu máli um þetta. Það veit hv. þm. jafn vel og ég. Það er ekki að ástæðulausu að þessi gagnrýna umræða fer fram og ákveðnar varnaðarraddir eru á ferðinni og full ástæða til þess að gæta að sér.
Ég vil líka benda á að það er ekki verið að loka á eitt eða neitt í sambandi við rannsóknir og þess háttar ef við förum ekki inn á Evrópskt efnahagssvæði. Það er þrálátur misskilningur að okkur séu allir vegir lokaðir ef við förum ekki inn á þetta dásamlega efnahagssvæði. Ég hef aldrei almennilega skilið það. Ég held að við getum farið út í rannsóknir, ég held að við getum farið út í þróunarstarf og verslun, við getum sótt á markaði og við getum gert það sem gera þarf og við þurfum að gera það sjálf. Við förum ekki að leita að björgun utan frá. Ef við gerum ekki hlutina sjálf gerist auðvitað ekki neitt. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem full ástæða er til að vara við, að menn fari ekki að leita að hjálpræðinu að utan eins og oft hefur verið vitnað í. Þaðan kemur það að sjálfsögðu ekki. Það verður að koma frá okkur sjálfum. Ég held að það sé svolítið hættulegt að bíða bara eftir því að við göngum inn á einhvern markað og þá muni öll okkar vandamál leysast. Því miður eru jafnvel ábyrgustu sérfræðingar sekir um að haga málflutningi sínum þannig að ætla mætti að svo væri. Það er það að sjálfsögðu ekki.