Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara inn á þá útúrsnúningabraut og skæklatog sem hv. þm. var á. Ég verð að segja að andsvar hans olli mér vonbrigðum vegna þess að það var ekki í samræmi við þá
stefnubreytingu hjá Alþb., að láta einmitt af þess háttar framkomu. Það getur vel verið að það sé aðeins formaður flokksins einn sem ætlar að taka upp þá stefnubreytingu en hv. fyrrv. samgrh. ætli að halda sér við hið gamla lagið.
Hv. þm. sagði að ég hefði verið að harma það og að það væri aðalvandamálið í atvinnuleysinu, eins og þingmaðurinn sagði, að Atvinnuleysistryggingasjóðurinn væri ekki nógu öflugur. Ég sagði að það væri athyglisvert og umhugsunarefni og ég kenndi engum um það ef hv. þm. hefur hlustað að þrátt fyrir það að í áratugi hefði ekki verið neitt atvinnuleysi hér hefði þessi sjóður ekki náðst að byggjast upp eins og hefði átt að gerast. Það er eðli slíks sjóðs. Það eru hreinar hártogarnir og skæklatog af ómerkilegum toga sem hv. þm. nefndi í því sambandi.
Í annan stað tók ég þær tölur sem ég nefndi beint eftir hv. málshefjanda og lagði, held ég út af, með svipuðum hætti og hann --- það væri miklu meira atvinnuleysi annars staðar --- og tók sérstaklega fram að það bætti ekki böl okkar. Ég tók það sérstaklega fram að engin tenging væri í því sambandi, hv. þm. Hv. þm. hefur því lagt skilning í málið sem lá ekki í málinu.