Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Heilagsandahopparar eru þeir menn sem hæst kyrja í gengisfellingarkórnum.
Hv. þm. vakti athygli á því að ég hefði nefnt til sögunnar nokkra þætti sem eru jákvæðir varðandi efnahagsástand á Íslandi samanborið við önnur lönd og spurði: Hverjum er það að þakka? Má ég nefna dæmi?
Núv. ríkisstjórn hófst handa um aðgerðir í ríkisfjármálum. Þær lýstu sér í því að grípa til aðgerða sem sættu mikilli og þungri gagnrýni stjórnarandstæðinga og voru taldar óþarfar og bera vott um helst illt innræti þeirra sem stjórnina leiddu. Þessar aðgerðir voru um það að spara ríkisútgjöld, taka upp í nokkrum mæli þjónustugjöld og draga úr greiðslustraumum frá ríkinu og snerust á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar um um það bil 14 milljarða kr. Ef ekki hefði verið gripið til þessara aðgerða sem og þeirra aðhaldsaðgerða sem þó má finna í núv. fjárlagafrv. má slá því föstu að innbyggður halli í ríkisfjármálum væri á bilinu 20--25 milljarðar.
Þetta er dæmi um að þarna var af skammsýni sagt: Þetta eru þarflausar aðgerðir. Á þeim þurfti ekki að halda. Nú ber öllum saman um að þetta voru nauðsynlegar aðgerðir en gagnrýnin er öfug. Hún er um að ekki hafi verið gengið nógu langt.