Rannsókn á afleiðingum atvinnuleysis

49. fundur
Mánudaginn 09. nóvember 1992, kl. 15:27:36 (1991)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill taka það fram vegna ræðu hv. 5. þm. Suðurl. að utanrrh. og forsrh. hafa verið við þessa umræðu. Utanrrh. er í húsinu en forseti mun að sjálfsögðu gera ráðstafanir til þess að fá þá ráðherra sem fært er að fá í þinghúsið til að koma hingað og væntir þess að hv. þm. sætti sig við það.