Rannsókn á afleiðingum atvinnuleysis

49. fundur
Mánudaginn 09. nóvember 1992, kl. 15:28:54 (1993)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti mun koma þeirri ósk á framfæri að hæstv. félmrh. verði við umræðuna þegar hún heldur fram á næsta fundi, en forseti hefur gert ráðstafanir til þess að þeir ráðherrar, sem eru í húsinu, verði viðstaddir umræðuna og óskar eftir því að unnt verði að halda áfram við þær umræður sem eru á dagskrá.