Rannsókn á afleiðingum atvinnuleysis

49. fundur
Mánudaginn 09. nóvember 1992, kl. 16:00:48 (2003)

     Flm. (Svavar Gestsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þær upplýsingar sem komu fram í þessari ræðu og þeirri síðustu þar á undan um Atvinnuleysistryggingasjóð. Ég vil jafnframt spyrja því ég hygg að ekki sé öllum það ljóst: Á hvers vegum er sú endurskoðun á lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð sem er í gangi og hverjir eiga aðild að endurskoðuninni?