Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 14:21:14 (2014)

     Guðni Ágústsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. svar hans. Hann upplýsir hér að það sé viðurkennd aðferð að taka lán. Það er hárrétt, það er viðurkennd aðferð. En hann svaraði ekki spurningu minni. Ég spyr hann aftur: Gerir hann sér ekki grein fyrir því að það að flýta stórverkefnum mun koma niður á ýmsum öðrum brýnum verkefnum? Þau verða skorin niður á næstu árum. Ég vil fá skýrt svar frá hv. þm. um það hvort hann hafi ekki áttað sig á þessu atriði um leið og hann féllst á rök ríkisstjórnarinnar.