Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 14:45:40 (2027)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég endurtek fyrir hæstv. samgrh. að það sem fyrir liggur er að byrja strax á Kúðafljóti. Í öðru lagi liggur fyrir að það fjármagn sem tekið verður og ekki er þegar inni á vegáætlun verður tekið af samsvarandi framkvæmd og hún er engin önnur en Gilsfjörður.