Vegáætlun 1992

50. fundur
Þriðjudaginn 10. nóvember 1992, kl. 14:59:41 (2032)

     Einar K. Guðfinnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það var alrangt hjá hv. 2. þm. Vestf. að ég væri að reyna að skýla mér á bak við sérfræðinga. Hins vegar var ég meðfram öðru að vitna í sérfræðinga mér til halds og trausts eins og við gerum oft, bæði ég og hv. 2. þm. Vestf., og mat þeirra á þessu máli. Það hefur ekkert gerst í þessum umræðum sem gefur til kynna að staða Gilsfjarðarbrúar hafi versnað við þessa tillögugerð hæstv. ríkisstjórnar nema síður sé. Ég held að það sé miklu fremur hitt að staða hennar hafi batnað eins og ég reyndi að koma orðum að áðan.