Sementsverksmiðja ríkisins

51. fundur
Miðvikudaginn 11. nóvember 1992, kl. 14:10:40 (2108)


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins. Frv. er að finna á þskj. 252. Frv. hefur þrívegis áður verið lagt fram á Alþingi í mjög svipaðri mynd. Á 112. löggjafarþingi var það raunar afgreitt frá efri deild en dagaði uppi í neðri deild. Á 113. löggjafarþingi var frv. flutt að nýju í efri deild en hlaut ekki afgreiðslu, enda var þinghald þá venju fremur stutt. Á síðasta þingi var frv. aftur flutt og fór til nefndar eftir 1. umr. en hlaut ekki afgreiðslu þaðan.
    Tilgangurinn með þessu lagafrv. er, eins og fram kemur í heiti þess, að breyta rekstrarformi Sementsverksmiðju ríkisins í hlutafélag. Frv. er að stofni til byggt á frv. sem samið var í iðnrn. árið 1987. En á því hafa síðan verið gerðar nokkrar breytingar. Meginefni frv. má í stuttu máli lýsa í sex liðum.
    Í fyrsta lagi er lagt til að ríkisstjórninni sé heimilt að leggja Sementsverksmiðju ríkisins og allt hennar fylgifé til sérstaks hlutafélags sem stofnað verði og að sérstök matsnefnd skuli meta eignir og verði matið haft til viðmiðunar við ákvörðun um upphæð hlutafjár í væntanlegu félagi.
    Í öðru lagi að hlutverk hins nýja félags verði víðtækara en hlutverk Sementsverksmiðjunnar er nú og því heimilað að gerast eignaraðili í öðrum hlutafélögum eða sameignarfélögum. Heimili félagsins og varnarþing verður á Akranesi.
    Í þriðja lagi er lagt til að öll hlutabréf félagsins verði við stofnun þess eign ríkissjóðs og að samþykki Alþingis þurfi til að bjóða hlutabréfin til sölu.
    Í fjórða lagi er lagt til að við verksmiðjuna starfi sérstök samstarfsnefnd starfsmanna og stjórnar og lögbundið samráð verði haft við Akraneskaupstað um málefni félagsins.
    Í fimmta lagi er lagt til að skipuð verði sérstök undirbúningsnefnd til þess að undirbúa stofnun félagsins og að stofnfundur verði haldinn eigi síðar en 1. júlí 1993.
    Í sjötta lagi er lagt til að nýja hlutafélagið yfirtaki reksturinn í ársbyrjun 1994.
    Með lögum nr. 35/1948 veitti Alþingi ríkisstjórninni heimild til að reisa hér á landi verksmiðju til að framleiða sement. Á grundvelli þessara laga var Sementsverksmiðja ríkisins á Akranesi síðan reist og hefur verið rekin sem sérstakt ríkisfyrirtæki en um hana gilda raunar ekki önnur lagaákvæði en lögin um byggingu sementsverksmiðju frá 1948.
    Sementsverksmiðjan tók til starfa árið 1948 og hefur starfað óslitið síðan. Fjárhagur hennar er traustur eins og fram kemur í grg. með frv.
    Alþingi kýs nú fimm menn í stjórn Sementsverksmiðjunnar til fjögurra ára í senn og skipar iðnrh. einn úr hópi stjórnarmanna formann. Í þessu frv. er lagt til að lögbundið verði samráð starfsmanna og stjórnenda í þessu væntanlega hlutafélagi og jafnframt að tryggt verði til frambúðar samráð félagsstjórnar og bæjaryfirvalda á Akranesi.
    Þetta er lagt til ekki síst með tilliti til þess að tryggja stöðu starfsmanna og bæjaryfirvalda, tryggja stöðu þeirra að stjórn félagsins en þessir aðilar hafa jafnan átt gott samstarf við hina þingkjörnu stjórn fyrirtækisins.
    Til þess að tryggja sem best að mat á eignum verksmiðjunnar endurspegli réttilega þau verðmæti sem þarna er um að ræða er í frv. lagt til að þriggja manna matsnefnd hæfra og óvilhallra manna leggi mat á verðmæti verksmiðjunnar og skal a.m.k. einn þeirra vera löggiltur endurskoðandi. Nefndin skal dómkvödd af héraðsdómara Vesturlands í Borgarnesi.
    Hér verð ég að vekja athygli hv. þm. á villu í b-lið í 1. gr. frv., en þar segir að bæjarfógetinn á Akranesi skipi hina dómkvöddu nefnd. Þetta á ekki lengur við vegna nýlegra breytinga á dómstólaskipun landsins og það er því héraðsdómari Vesturlands í Borgarnesi sem skal dómkveðja matsnefndina.
    Inn í mat nefndarinnar kemur að sjálfsögðu jafnt verðmæti fasteigna, véla og búnaðar, sem og þróunarkostnaður, viðskiptavild og fleira.
    Síðan er lagt til að ráðherra skipi aðra nefnd sem hafi það hlutverk að stofna hlutafélagið og koma því á laggirnar en lagt er til að það taki við verksmiðjurekstrinum 1. jan. 1994.
    Ef þetta frv. verður að lögum mun stjórn hlutafélagsins kjörin á aðalfundi til eins árs í senn og mun iðnrh. fara með eignarhlut ríkisins í félaginu. Um stjórn félagsins, framkvæmdastjórn, ársreikninga o.s.frv., mun fara eftir ákvæðum hlutafélagalaga og samþykktum félagsins en gæta verður í því sambandi sérákvæða sem lagt er til að lögfest verði, svo sem um hlutverk, heimili, endurráðningu starfsmanna, samstarfsnefnd og samráðsfundi.
    Það er gengið út frá því að þetta fyrirtæki greiði skatta eins og hvert annað hlutafélag. Verksmiðjan greiðir nú landsútsvar í stað aðstöðugjalds og fær Akraneskaupstaður fjórðung landsútsvarsins auk hlutdeildar í tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samkvæmt reglum þar að lútandi.
    Reikna má með því að tekjur kaupstaðar af aðstöðugjaldi verði nokkru hærri en hlutur kaupstaðarins í landsútsvari. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun tapa samsvarandi fjárhæð í tekjum sínum sem þó skiptir sjóðinn tiltölulega litlu máli.
    Við þessa breytingu verða aðstöðugjaldstekjur bæjarfélagsins á hvern íbúa sambærilegar og hjá velflestum öðrum sveitarfélögum. Því er við að bæta að nú eru uppi tillögur sem taka til þess að aðstöðugjald sem tekjustofn sveitarfélaga verði lagt af fljótlega annaðhvort að hluta til eða með öllu. Kemur þá til kasta hv. þingnefndar að meta stöðu málsins að því er þetta varðar en ganga má út frá því sem gefnu að þótt þessi breyting kunni að verða í náinni framtíð eru jafnframt uppi tillögur um hvernig því skuli mætt að því er varðar breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga.
    Þegar breyta á ríkisfyrirtæki í hlutafélag þarf að huga m.a. að aðstöðu starfsmanna. Með frv. er núverandi starfsmönnum Sementsverksmiðjunnar tryggur réttur til endurráðningar hjá hinu nýja hlutafélagi. Um 20 af starfsmönnum Sementsverksmiðjunnar eru nú í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Réttindi þeirra haldast óbreytt við þá formbreytingu á rekstri sem hér er stefnt að. Vísast í því sambandi til ákvæðis í 2. mgr. 17. gr. laga nr. 29/1963. Engir starfsmenn Sementsverksmiðju ríkisins hafa gerst aðilar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins hin síðari ár. Um lífeyrismál annarra starfsmanna fer eftir ákvæðum kjarasamninga.
    Virðulegi forseti. Aðalspurningin sem upp kemur varðandi frv. er þessi: Hvers vegna er lagt til að Sementsverksmiðjan skuli rekin sem hlutafélag? Svarið við því er einfalt. Með því að fyrirtækið væri rekið sem hlutafélag yrðu rekstrarskilyrði þess samræmd því sem almennt gildir um stærri fyrirtæki í landinu. Með því móti yrði ábyrgð ríkissjóðs á fyrirtækinu takmörkuð við hlutafjáreign ríkisins. Um alla starfsmenn giltu sömu reglur og á almennum vinnumarkaði og skattareglur fyrirtækisins yrðu þær sömu og almennt gilda. Sementsverksmiðjan hefur auðvitað í raun haft einokunaraðstöðu á íslenskum markaði. Hlýtur hún þess vegna að vera undir smásjá hvað varðar verðlagningu á framleiðslu fyrirtækisins.
    Skylt er að geta þess í þessu sambandi að innflutningur á sementi er frjáls. Hins vegar hefur enginn séð sér hag í því hingað til að flytja inn sement vegna þess að innflytjendur hafa ekki getað keppt við það verð sem Sementsverksmiðja ríkisins býður. En meðan ríkissjóður á öll hlutabréf í þessu fyrirtæki verður ekki breyting á ábyrgð stjórnvalda á verðlagningu sements en í raun hafa það verið verðlagsyfirvöld en ekki eigendur fulltrúa fyrirtækisins sem á undanförnum árum hafa haft síðasta orðið um verðlagningu á sementi. Ef hlutabréf í félaginu yrðu hugsanlega seld síðar, með samþykki Alþingis, mundu koma upp spurningar um yfirburðaaðstöðu félagsins á markaði og auðvitað þá stóraukið eftirlit opinberra aðila. Fyrirtækið yrði áfram undir smásjá verðlagsyfirvalda samkvæmt núgildandi lögum, en það fellur undir skilgreininguna ,,markaðsráðandi fyrirtæki á sínu framleiðslu- og sölusviði``.
    Við eigum væntanlega eftir á næstunni að sjá breytingar á þeirri löggjöf sem mælir fyrir um frjálsa samkeppni fyrirtækja á íslenskum markaði og munum þá e.t.v. taka nýjum tökum ýmis vandamál í verðmyndun hér á landi sem stafa af einokunaraðstöðu fyrirtækja hvort sem þau eru í opinberri eigu eða einstaklingseigu.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni umræðunni vísað til 2. umr. og hv. iðnn.