Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Virðulegi forseti. Hv. 18. þm. Reykv. spyr: ,,1. Hvernig hefur undirbúningi íslenskra stjórnvalda verið háttað fyrir evrópsku mannfjöldaráðstefnuna sem haldin verður í Genf 23.--25. mars 1993?
2. Hvernig hyggjast stjórnvöld haga þátttöku Íslendinga í evrópsku mannfjöldaráðstefnunni 1993?``
Mannfjöldaráðstefna Evrópu sem verður haldin í mars 1993 er nú í fyrsta sinn haldin sameiginlega af Genfarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðinu og Evrópubandalaginu. Sameinuðu þjóðirnar hafa frá upphafi unnið að mannfjöldamálum og halda á áratugs fresti heimsþing um mannfjöldaþróun og mannfjöldapólitík. Undanfari hvers slíks heimsþings eru svæðisbundnar ráðstefnur, svo sem sérstök Evrópuráðstefna. Á ráðstefnuna koma sendinefndir ríkisstjórna og er óskað eftir því að fyrir sendinefnd fari sem hæst settur embættismaður og helst ráðherra. Ráðstefnan samþykkir stefnumarkandi ályktanir.
Evrópuráðið stendur fyrir umfjöllun um mannfjöldamál og starfar mannfjöldanefnd Evrópu á þess vegum. Þar er einn fulltrúi hvers aðildarlands en þeir eru þar sem einstaklingar og hlutverk nefndarinnar er fyrst og fremst fræðilegs eðlis. Hún er Evrópuráðinu til ráðgjafar um mannfjöldamál og stýrir verkefnum sem valdir fræðimenn eru fengnir til að vinna. Nefndin stendur fyrir námsstefnum og ráðstefnum um mannfjöldamál Evrópu.
Þegar ljóst var að mannfjöldaráðstefnur beggja stofnanna voru fyrirhugaðar á árinu 1993 samdist um að sameinast um eina ráðstefnu ásamt Evrópubandalaginu. Utanrrn. hefur annast þann takmarkaða undirbúning fyrir ráðstefnuna sem fram hefur farið. Ráðuneytið sendi Hagstofunni spurningalista frá Sameinuðu þjóðunum um álit á stefnu yfirvalda varðandi mannfjöldaþróun. Eins og áður annast Hagstofan upplýsingasöfnun fyrir Sameinuðu þjóðirnar og hefur sent þann hluta listans sem varðar fæðingar og manndauða til landlæknisembættisins og þann sem varðar dreifingu byggðar og fólksflutninga innan lands og milli
landa til Byggðastofnunar. Boð um að senda sendinefnd til fundarins var sent út í sumar af hálfu forstöðu stofnunarinnar. Boð þetta er til athugunar í utanrrn. en ekki hefur verið ákveðið enn sem komið er hvernig þátttöku Íslands verður þar háttað. Fyrir liggur þó að starfsmaður Hagstofunnar mun sækja ráðstefnuna sem nefndarmaður í mannfjöldanefnd Evrópuráðsins.