Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Það er eitt af mikilvægustu verkefnum sem við stöndum frammi fyrir að tryggja rétt okkar til þess að nýta auðlindir sjávarins og hefja hvalveiðar að nýju. Við ákváðum að segja okkur úr Alþjóðahvalveiðiráðinu og sú ákvörðun tók gildi á miðju þessu ári. Það gerðum við fyrst og fremst vegna þess að við töldum útséð að á þeim vettvangi skapaðist svigrúm á næstu árum til þess að við næðum markmiðum okkar í þessu efni.
Það hefur verið unnið að undirbúningi að stofnun svæðasamtaka hér á Norður-Atlantshafinu. Um það var gerður stofnsamningur í Grænlandi í aprílmánuði sl. og þau samtök hafa tekið til starfa og fyrsti fundur þeirra var haldinn nú í haust. Við höfum lagt mjög ríka áherslu á að koma upplýsingum um okkar málstað á framfæri. Það var gert í tengslum við úrsögn okkar þegar hún var ákveðin um síðustu áramót og enn með skipulagsbundnum hætti í tengslum við ársfund Alþjóðahvalveiðiráðsins þar sem úrsögn okkar tók gildi. Við höfum hafið samstarf við helstu útflytjendur á sjávarafurðum til þess að afla upplýsinga um markaðsstöðu og viðhorf helstu seljenda á mörkuðum til þess að hafa allar haldbærar upplýsingar í þeim efnum við höndina og standa með sem víðtækastri samstöðu að þeirri upplýsingaöflun sem nauðsynleg verður þegar ákvörðun verður tekin um að hefja veiðar.
Markmið okkar í þessu er alveg skýrt. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um það. Ég hef áður greint frá því að forgangsverkefni í þessu efni verður að hefja veiðar á hrefnu. Ég hef einnig áður lýst því að ég teldi æskilegt að slíkar veiðar gætu hafist á næsta ári en eins og sakir standa get ég ekki fullyrt að ákvörðun verði tekin þannig að veiðar geti hafist þegar á næsta ári. En ég ítreka það að ég tel æskilegt að allur okkar undirbúningur miðist við að svo geti orðið en ekki er hægt að fullyrða hvort það tekst eins og mál standa í dag.