Innheimta Pósts og síma

52. fundur
Fimmtudaginn 12. nóvember 1992, kl. 12:35:58 (2183)

     Össur Skarphéðinsson :
    Virðulegi forseti. Aðeins örstutt um þetta. Hér hefur komið fram um þessar beinu upplýsingalínur að það sem þar er sagt þurfi að vera innan almennra velsæmismarka, eins og hæstv. ráðherra hefur orðað það. Mig langar þess vegna til að varpa tveimur spurningum til hæstv. ráðherra: Hveru eru þessi almennu velsæmismörk og hver fer yfir þetta efni? Er það póst- og símamálastjóri eða er það ráðherrann sjálfur?