Jón Kristjánsson
(um þingsköp)
:
Frú forseti. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram í umfjöllun um þessa skýrslu. Það er mjög erfitt að fjalla um hana án þess að a.m.k. fjmrh. sé viðstaddur. Ég var með spurningar til hans í þessari umræðu sem ég hefði viljað fá svör við. Ég tek líka undir það að skýra þarf reglur um það og endurskoða í ljósi fenginnar reynslu hvernig með skýrslur Ríkisendurskoðunar er farið. Það er ekki langt síðan lög um Ríkisendurskoðun tóku gildi eða síðan við hv. þm. og forsætisnefnd vorum að móta reglur um þetta starf. Auðvitað þarf í ljósi reynslunnar að endurskoða þær. Ég vildi taka undir það.