Vinnumarkaðsmál

56. fundur
Miðvikudaginn 18. nóvember 1992, kl. 15:19:50 (2356)

     Frsm. félmn. (Guðjón Guðmundsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingar á lögum um vinnumarkaðsmál vegna aðildar að samningi um Evrópskt efnahagssvæði. Með leyfi forseta mun ég nú gera grein fyrir álitinu sem er á þskj. 267.
    Nefndin hefur fjallað um málið. Á fund hennar komu Berglind Ásgeirsdóttir, Gylfi Kristinsson og Gunnar Sigurðsson frá félmrn. Enn fremur komu Hrafnhildur Stefánsdóttir frá VSÍ, Hjörtur Eiríksson frá VMSS, Björn Arnórsson frá BSRB, Páll Halldórsson, Birgir Björn Sigurjónsson og Eggert Lárusson frá

BHMR, Ari Skúlason frá ASÍ, Ragnhildur Hjaltadóttir frá samgrn. og Guðjón A. Kristjánsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands. Þá studdist nefndin við umsagnir er bárust á 115. löggjafarþingi frá VMSS, Sambandi byggingamanna, Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða, BHMR, Jafnréttisráði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Stéttarsambandi bænda, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, ASÍ, Vinnuveitendasambandi Íslands, Kennarasambandi Íslands, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og Fjórðungssambandi Vestfirðinga.
    Nefndin mælir með samþykkt frv. verði frv. til laga um Evrópska efnahagssvæðið samþykkt. Einstakir nefndarmenn áskilja sér jafnframt rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum er fram kunna að koma. Eggert Haukdal tekur fram að stuðningur hans við frv. sé óháður því hvaða afstöðu hann muni taka við afgreiðslu frv. um Evrópska efnahagssvæðið.``
    Undir nál. rita Guðjón Guðmundsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Drífa Hjartardóttir, Össur Skarphéðinsson, Eggert Haukdal og Pétur Sigurðsson. Með fyrirvara rita undir nál. Ingibjörg Pálmadóttir, Jón Kristjánsson og Kristinn H. Gunnarsson.