Herra forseti. Ég ætla að svara hér fsp. frá hv. þm. Einari Má Sigurðarsyni, en leiði hjá mér að mestu ræðu hv. þm. Svavars Gestssonar sem hljóp hér í skarðið fyrir Einar Má.
Það er spurt hvenær búast megi við að nefnd, sem skipuð var af menntmrh. sl. vor til að endurskoða grunn- og framhaldsskólalög, skili áliti. Um miðjan desember mun nefnd um mótun menntastefnu og endurskoðun grunn- og framhaldsskólalaga skila áfangaskýrslu um mat á skólastarfi og innra starfi skóla, einkum á unglingastigi grunnskóla og í framhaldsskóla. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir að nefndin ljúki störfum fyrr en í lok mars á næsta ári.
Í öðru lagi er spurt hvort fyrirhugað sé að nefndin skili frumvörpum að nýjum grunn- og framhaldsskólalögum. Svarið við þeirri spurningu er já. Það er fyrirhugað að nefndin skili frv. að nýjum grunn- og framhaldsskólalögum.
Í þriðja lagi er svo spurt hvert samráð nefndarinnar við samtök kennara hafi verið. Í erindisbréfi nefndarinnar segir:
,,Nefndin skal í störfum sínum hafa samráð við þá hagsmunaaðila sem að skólamálum koma svo sem samtök foreldra, samtök kennara í grunnskólum og framhaldsskólum, samtök skólastjórnenda í grunnskólum og framhaldsskólum, samtök sveitarfélaga, Kennaraháskólans og Háskóla Íslands og aðra þá aðila
sem nefndin telur þörf á að hafa samráð við.``
Áfangaskýrslunni er ætlað að vera umræðugrundvöllur fyrir nefndina og samráðsaðila. Þegar hún liggur fyrir mun verða haft samráð við alla þá aðila sem kveðið er á um í erindisbréfinu, þar á meðal samtök kennara.
Varðandi orð hv. þm. Svavars Gestssonar um 18 manna nefndina og skipan hennar þá hef ég svarað því áður. Það var ekki leitað eftir tilnefningu þeirra mörgu aðila sem hagsmuna hafa að gæta af lagasetningu almennt um skólamál. Hins vegar eiga sæti í þessari nefnd menn sem eru í sveitarstjórnarmálum og í kennslu á ýmsum sviðum þótt þeir teljist ekki fulltrúar neinna þessara samtaka. Það er rétt. En í nefndinni eru menn sem sitja í stjórnum kennarasamtaka t.d.
Um pólitískar skoðanir þessara manna er mér ekki að fullu kunnugt. Mér er ekki kunnugt um pólitískar skoðanir þeirra allra en mér er kunnugt um pólitískar skoðanir sumra. En það er rangt veit ég að þeir séu allir sjálfstæðismenn. Þó ég vildi gjarnan að þeir væru það hef ég komist að því að þeir eru það ekki allir. ( SvG: Vildir þú það virkilega?) Ég vildi helst að allir landsmenn væru sjálfstæðismenn. En mér verður víst ekki að þeirri ósk minni. Ég veit að þeir eru ekki allir í þeim flokki sem sæti eiga í þessari nefnd.
Svo aðeins varðandi það að ég hafi lagt til hliðar stefnumótun forvera míns í skólamálum, Til nýrrar aldar. Það er rétt að ég lagði það plagg til hliðar. En lét þess auðvitað getið að það gilti að því er tæki til gildandi laga. Og það er margt sagt í því ágæta riti, sjálfsagðir hlutir sem styðjast við gildandi lög. Og að sjálfsögðu gildir það áfram.