Anna Ólafsdóttir Björnsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil taka þátt í þessari umræðu fyrst og fremst til þess að vekja athygli á því hversu gríðarlega stórt þetta vandamál er og að hér þurfi að koma framlag allra þeirra þjóða sem eitthvað geta lagt af mörkum og það mjög hressilega. Nú er ekki einungis yfirvofandi vetur heldur er vetur að ganga í garð og því skiptir tíminn verulegu máli. Jafnframt er það staðreynd að á mjög erfiðum svæðum, svo sem í lýðveldinu Bosníu-Hersegovínu eru 810 þúsund manns á faraldsfæti og það er einmitt í þessu ríki fyrrum Júgóslavíu sem stríðsátökin hafa verið einna hörðust að undanförnu.
Í Króatíu er samsvarandi tala 717.798 samkvæmt nýjum tölum. Hér er því um verulegan hóp fólks að ræða sem býr við ófrið og eymd.