Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Hv. þm. Svavar Gestsson nefndi sem dæmi um að ég réði ekkert við stjórn sjóðsins að ekki hefði verið farið að tilmælum mínum um að Iðnnemasambandið fengi áheyrnarfulltrúa í stjórninni. Ég get upplýst hv. þm. um að Iðnnemasambandið mun fá þennan áheyrnarfulltrúa. Ég hef rætt það nýlega við stjórnina og ég veit að sú ákvörðun, hafi hún ekki þegar verið tekin, mér er ekki alveg kunnugt um það, þá verður það gert og það hef ég tilkynnt Iðnnemasambandinu í símtali að vísu.
Um skuldirnar vil ég aðeins segja að ég hef raunar þegar svarað því hvers vegna skuldirnar fara vaxandi. Ég hef fullyrt að með ríkisframlaginu, sem ætlað er að vera 54% af námsaðstoðinni, muni sjóðurinn standa undir sér. Það er ekki verið að setja sjóðinn í neina hættu fyrir þessar vaxandi lántökur á næstu árum. Ég hef því miður ekki undir höndum töflu um það hvenær þessi lántaka fer lækkandi en þetta er alveg ljóst.
Ég sagði ekki orð um það að í fjárlagafrv. væru upplýsingar um þessar skuldbreytingar. Ég sagði að af hálfu lánasjóðsstjórnarinnar væri unnið að því að fá þessum skammtímalánum skuldbreytt og ég veit ekki annað en vonir standi til að það muni takast að fá slíka samninga fram alveg á næstunni.