Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Virðulegi forseti. Eins og kom fram hjá hæstv. utanrrh. hefur málið verið rætt ítarlega í ríkisstjórn og jafnframt hefur það verið verið rætt allnokkrum sinnum í þingflokki Sjálfstfl. að sjálfsögðu og reyndar var bókaður á þingflokksfundi 15. júlí sérstakur stuðningur við það að taka upp samningaviðræður um aðild að þessu bandalagi. Jafnframt var þar bókað, að tilmælum hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar, að athygli yrði vakin á því að Íslendingar væru vopnlaus þjóð og hygðust vera það og ætti það að koma fram í þeim viðræðum sem þá væru að hefjast og Sjálfstfl. var að samþykkja. Og eins og hæstv. utanrrh. nefndi var gerð sérstök bókun um þetta efni. Þetta var einnig rætt á þingflokksfundi í gær, málið kynnt og sérstaklega beðið um það í upphafi fundar að ef menn gerðu athugasemdir þá væru þær gerðar á þeim langa fundi sem menn þá sátu. Það gerði enginn slíka athugasemd.