Aðild Íslands að Vestur-Evrópusambandinu

58. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 15:26:37 (2474)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti verður að upplýsa að því miður þarf hún að hverfa úr forsetastóli. Ef einhverjar athugasemdir beinast að þeim forseta sem hér stendur væntir hún þess að það verði hægt að koma því til skila. Það er af óviðráðanlegum ástæðum sem forseti þarf að hverfa úr forsetastóli um sinn.