Ferðamál

58. fundur
Fimmtudaginn 19. nóvember 1992, kl. 17:06:21 (2509)

     Flm. (Karen Erla Erlingsdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Mín tillaga byggist bara alls ekki á sölu Búnaðarbankans eða inngöngu í EES. En ég veit ekki betur en að þú sitjir í ríkisstjórn sem hefur meiri hluta. Ég held að það sé bara ekki á valdi Framsfl. hvort EES verður samþykkt eða Búnaðarbankinn seldur. Ég

held að þetta sé bara í þínum höndum, Össur minn og þinna manna.