Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir taka undir efni þessarar þáltill. Ég held að það sé mjög mikilvægt að unnið verði á þeim nótum á næstunni að tengja saman ferðamálin og umhverfismálin einfaldlega út frá þeirri staðreynd að það er sá auður sem við eigum til að selja útlendingum sem hér vilja koma. Það er ómenguð og tær náttúra.
Það sem hins vegar varð þess valdandi að ég kem upp er vel þekkt ást hv. 17. þm. Reykv. á framsóknarmönnum og leiðsögn sem hann tekur oft óbeðinn að sér að veita okkur. Það sem vefst hins vegar aðeins fyrir mér núna er afstaða hv. þm. til sölu Búnaðarbankans því hann hefur dregið það mál inn í þessa umræðu. Ég vil því, virðulegi forseti, fara þess á leit við hv. þm. að hann upplýsi okkur um það hvort hann hafi verið meðmæltur þeim markmiðum fjárlagafrv. að meginuppistaðan í öflun fjár með sölu ríkisfyrirtækja á næsta ári verði sala Búnaðarbankans. Einhvern veginn minnir mig að hv. þm. hafi gengið fremstur í flokki til að stöðva þær ráðagerðir á síðasta ári. Það er svolítið hlálegt að þeir peningar sem eiga að renna til nýsköpunar og til rannsókna eiga að koma sem hlutfall af þessari sölu. Hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn stjórnarliðsins grípa oft til þess að nefna það að þarna sé búið að finna tekjustofn til þess að fjármagna rannsóknir á næstunni.
Ég hef tvennt við þetta að athuga. Í fyrsta lagi sé ég ekki og það hefur enginn sýnt mér fram á það að þau markmið ríkisstjórnarinnar að selja ríkisfyrirtæki og afla til þess fjár upp á 1.500 millj. á næsta ári standist. Það bendir ekkert til þess að það markmið fjárlaga standist frekar en það stenst á yfirstandandi ári. Það markmið sem þá var sett stenst ekki. Bágur er hlutafjármarkaðurinn í ár og því miður eru engar líkur á því að hann verði öflugri á því næsta.
Í öðru lagi bendi ég hv. þm. á það að út frá þessum forsendum er allt tal um það að ríkisstjórnin ætli að efla rannsóknir og þróunarstarf með þessari fjárveitingu orðagjálfur eitt.
Varðandi ummæli þingmannsins og áhuga hans á ferðamálum get ég bent honum á það að í þeirri málefnavinnu sem nú fer fram innan Framsfl. fyrir flokksþing, sem er eftir rúma viku, er m.a. tekið sérstaklega á ferðamálunum. Í þeirri vinnu hafa menn lagt eyrun við því sem Ferðamálaráð og aðrir hagsmunaaðilar hafa verið að vinna á síðustu vikum. Ég vil því að lokum beina því til hv. þm. að nú láti hann að þeim vilja sínum, sem berlega hefur komið í ljós að undanförnu, m.a. í viðtölum hans við Tímann og þeim framsóknaranda sem svifið hefur yfir vötnunum í þeim viðtölum, og gangi í Framsfl. fyrir flokksþing svo hann geti komið þar og tekið virkan þátt í að móta ferðamálastefnu Framsfl.