Jón Helgason
:
Hæstv. forseti. Ég hlýt að láta í ljós vonbrigði mín yfir þeirri stefnu Alþfl. að ekki eigi að verja fjármagni til stuðnings við atvinnulífið, eins og þessum 100 millj. sem rætt er um í greinargerð með þáltill. til markaðsátaks, nema Ísland gerist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Ber að skilja þetta þannig að ef við gerumst ekki aðilar að því standi íslenskt efnahagslíf svo miklu betur að það þurfi ekki að verja neinu fjármagni til að efla atvinnulífið eða ber að skilja það þannig að veita þurfi atvinnulífi hér á landi þennan stuðning eftir að erlendir aðilar hafa rétt til þess að ganga hér inn og þar séu möguleikar þeirra ekki nógu miklir nema því aðeins að það komi fram stuðningur frá ríkinu? Þetta hefur sem sagt komið fram á fleiri sviðum og verið áður til umræðu. Ég get ekki skilið af hverju þessar 100 millj. kr. eiga ekki að vera handbærar til markaðsátaks þó að við gerumst ekki aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Ég tel, eins og staða íslensks atvinnulífs er í dag, að það þurfi á stuðningi að halda í þessu skyni, jafnvel þótt við gerumst ekki aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu.