Tilkynning frá ríkisstjórninni

60. fundur
Þriðjudaginn 24. nóvember 1992, kl. 14:27:34 (2552)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vona að hv. þm. virði það að ekki hefur unnist tóm til að fullvinna frv. sem fylgir í kjölfar þessa samkomulags og þess vegna eru ekki öll atriði þess skýr. En þó að allar meginlínurnar liggi fyrir en það er kórrétt hjá hv. þm. að þriðji þáttur þessa gjalds og sá veigamesti kemur fyrst til álagningar þegar nokkuð er liðið á næsta kjörtímabil. Það er alveg hárrétt.