Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Hv. þm. kallar það stöðugleika árið 1989 að verðbólga var þá 25%. En það upplýsist hins vegar að þingmaðurinn átti ekki í fórum sínum neina varnarræðu þá. Hann varð ber að því núna að 15% kaupmáttarrýrnun þá skipti hann ekki nokkru máli. Hann varði ekki launþegana þá.
Þá vil ég spyrja, fyrst þingmaðurinn hefur afhjúpað sig að þessu leyti til varðandi fjármagnstekjuskattinn, hvort hann og félagi hans fjmrh. á þeim tíma úr sama flokki hafi undirbúið og flutt og barist fyrir sköttum á fjármagnstekjur þá.