Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson segir hæstv. sjútvrh. og Kristján Ragnarsson hafa svínbeygt Alþfl. varðandi þróunarsjóðinn. Hv. þm. Páll Pétursson telur hins vegar að Alþfl. hafi svínbeygt sjútvrh. Það væri efnilegt fyrir umræður ef þeir gætu komið sér saman um þetta efni, það mundi stytta málið. Ég vona að þeir félagar vinni að lausn málsins og tilkynni okkur um niðurstöðuna meðan á þessari umræðu stendur. Það væri betra að hafa þetta í einu lagi.
Ég bendi líka á það vegna þess að hv. þm. hafði áhyggjur af að verðbólga væri komin af stað ef hún færi upp í rúm 4%, að hv. 7. þm. Reykn., formaður Framsfl., sagði í þingræðu fyrir um mánuði síðan eða svo að svona lág verðbólga eins og nú væri komin væri ekki góð, það þyrfti að hækka hana dálítið af því að svolítil verðbólga væri betri en engin verðbólga. Ég spyr þingmanninn hvort hann haldi að formaðurinn sé ekki orðinn nokkuð ánægður með stig sem verðbólgan stefnir í, svona 4% á einu ári og síðan niður í rétt rúmlega 1% eftir það.
Í þriðja lagi gagnrýnir hv. þm. okkur fyrir það að hafa ekki sinnt samráðsskyldunni nóg við Alþýðusambandið og um leið gagnrýnir þingmaðurinn okkur fyrir það að hafa hækkað reiknaðar tekjur einstaklinga um 15%. Alþýðusambandið krafðist þess að hækkunin yrði 45%. Ég spyr þingmanninn: Áttum við að fara eftir þeirri kröfu til þess að gæta alls samræmis og samráða í þessum umræðum?