Tilkynning frá ríkisstjórninni

60. fundur
Þriðjudaginn 24. nóvember 1992, kl. 17:45:15 (2581)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þegar hv. þm. talar um skatta á hverja fjölskyldu verður hann, ef hann ætlar að

taka með sæmilega skilmerkilegum hætti á þessu umræðuefni, að taka niðurfellingu aðstöðugjaldsins inn í þá mynd. Annað eru ekki vönduð vinnubrögð.