Tilkynning frá ríkisstjórninni

60. fundur
Þriðjudaginn 24. nóvember 1992, kl. 17:46:15 (2583)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Í rauninni skýrist þessi mynd langbest með því að taka þessar skattbreytingar í heild, fyrirtækin og fólkið sameiginlega og ríkisvaldið eða hið opinbera hins vegar, þá kemur á daginn, þegar ríki og sveitarfélög eru tekin saman og einstaklingarnir og fyrirtækin hins vegar, að hlutdeild hins opinbera í skattamálunum breytist sáralítið.