Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Auðvitað var um undirritun að ræða á þessum tíma, 1990, vegna þess að þá var um kjarasamninga að ræða. Hv. þm. hlýtur að muna það. Það var þess vegna sem málin voru undirrituð á þeim tíma. Það var vegna þess að aðilar vinnumarkaðarins tóku völdin í sínar hendur, gerðu kjarasamninga sem voru í engum takti við þau fjárlög sem hv. þm. hafði haft forustu um, í engum takti við þá þjóðhagsáætlun sem þá lá fyrir heldur tóku völdin af ríkisstjórninni vegna þess að hún var á röngu róli. Og auðvitað átti sér stað undirritun í því sambandi. Sá er munurinn þá og nú hér í þessum sal að þá var ábyrg stjórnarandstaða sem axlaði ábyrgð sem stjórnarandstöðu er ekki títt. Þessi stjórnarandstaða hefur, þrátt fyrir leikaraskap í einn og hálfan mánuð, hreinan leikaraskap sem ég tók gildan af því að ég áttaði mig ekki á að um leikaraskap var að ræða, reynst algerlega óábyrgð stjórnarandstaða. Það hefur komið mjög vel fram í þessum umræðum öllum. Menn fagna því sem jákvætt virðist vera en hlaupa frá öllu því sem þarf að borga með hinu jákvæða. Það eru óábyrgir menn, það er óábyrg stjórnarandstaða.