Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hv. þm. spurði hvaða breytingar hefðu orðið á efnahagstillögum ríkisstjórnar eftir að þróunin varð varðandi gengið. Því er til að svara að ekki lágu ekki fyrir formlegar eða endanlegar tillögur á þessu stigi máls eða þegar þessar breytingar urðu. Á hinn bóginn er hægt að segja að það var ljóst að gert var ráð fyrir því að tilfærslurnar yrðu jafnvel enn meiri í þeim umræðugrundvelli sem þá lá fyrir eftir að niðurstaðan varð sú að óhjákvæmilegt væri vegna breytinga á gjaldeyrismörkuðum að hreyfa gengi hinnar íslensku krónu þá dró úr þessum tilfærslum. Tryggingagjald var m.a. ekki lækkað eins og hafði verið í umræðunni og á móti voru bifreiðaskattar eða bílaskattar svokallaðir sem höfðu verið í umræðunni ekki hækkaðir.
Varðandi lækkun vaxta og þær efnahagsforsendur sem þar liggja til grundvallar er því til að svara að það eru margar forsendur sem gætu leitt til þess að vextir lækki. Það er hárrétt hjá hv. þm. að mikilvægt er að ríkisútgjöldin fari ekki úr böndum í því sambandi. Þess vegna er lagður til frekari sparnaður þar og niðurskurður. Gert er ráð fyrir því að húsbréf muni m.a. af markaðsástæðum --- og hugað verður að því sérstaklega --- verða í lægri kanti á næsta ári en í ár. Þá eru sköpuð lagaskilyrði og stjórnskipunarskilyrði til þess að bindiskylda bankanna geti lækkað. Í fjórða lagi liggur fyrir frv. um það að heimila Seðlabankanum að lækka viðbótarálag vegna dráttarvaxta. Þetta allt leiðir til eða getur leitt til vaxtalækkunar.
Varðandi endurnýjun Þjóðminjasafnsins, þá eru 110 millj., sérstaklega 100 millj., í þeim tillögum um viðbótarverkefni og 10 millj. sem þegar voru inni sem eiga að leiða til þess að endurbætur geti átt sér stað á Þjóðminjasafninu. Þessi ákvörðun hefur ekki verið tekin. Hún er eingöngu í tillöguformi til Alþingis og því ekki hægt að vinna á grundvelli þeirra tillagna fyrr en þingið hefur samþykkt þær. Ég tel fyrir

mitt leyti til að þessum fjármunum eigi að verja til þess að gera við það hús sem nú hýsir Þjóðminjasafnið en ekki til annarra hluta.
Varðandi norsku krónuna tel ég að engar líkur séu á því að hún hreyfist á neinn þann veg að eftir þá gengisfellingu sem þegar er orðin varðandi hina íslensku krónu þurfi að koma til breytingar af þeim ástæðum.