Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég átti ekki við hv. þm. sérstaklega sem síðast talaði því að hann gerði grein fyrir þessu, bæði þeim jákvæðu og neikvæðu þáttum. Einstaka þingmenn fyrr í dag hafa hins vegar eingöngu rakið það að til standi að setja 600 millj. kr. virðisaukaskatt á ferðamannaþjónustu sem væri í vandræðum fyrir. Það er rétt. Hv. þm. hins vegar gerði samviskulega og réttilega grein fyrir málinu.