Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Það var mjög athyglisvert að sjá í sjónvarpi og útvarpi viðtöl við almenning sem spurður var um þær ráðstafanir sem gerðar voru og sjá hversu jákvæð þau viðbrögð voru, allt önnur en viðbrögð sumra talsmanna ákveðinna hreyfinga. Viðbrögð almennings voru afskaplega jákvæð vegna þess að almenningur vill leggja töluvert á sig til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi í þessu landi. Þess vegna er almenningur tilbúinn til að taka þátt í þeim aðgerðum sem menn eru að vinna að. Þess vegna tel ég að menn geti búist við því að atvinnuleysi muni minnka. Það kom fram hjá hv. þm. að hann hefði áhyggjur af að það gerðist of seint að þá treysti ég því að í hans orðum felist það að hann og hans flokkur muni greiða fyrir því að þessar tillögur, þótt þær séu ekki fullnægjandi að mati hv. þm., fái greiða leið í gegnum þingið því þær munu örugglega gera mjög mikinn bata.