Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég held reyndar að í þessu máli hafi enginn unnið sérstakan sigur annar en stjórnin sem slík að ná saman um þessi mál. Meginatriðið er hins vegar að það liggur fyrir að þeir fjármunir sem til slíks sjóðs verður varið verða greiddir til baka á tilteknu tímabili með tilteknum hætti af greininni sjálfri. Umræðan um hvort talan sé nákvæmlega þessi eða hin á þessu augnabliki er því í rauninni marklaus.