Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þessar ótímabæru stríðsyfirlýsingar og stríðsfréttamennska þingmannsins munu ekki koma að neinu haldi því þetta verður allt saman mjög friðsamlegt. Ég fullvissa þingmanninn um það.
Varðandi reiknuðu launin mega menn ekki gefa sér það að þeir sem undir þær reglur eru settar séu skattsvikarar. Flest af því fólki er bara venjulegt heiðarlegt fólk. Á hinn bóginn má segja að það sé ástæða til að hækka þessa reikningslegu viðmiðun og það er lagt til að hún hækki um 15%. Ég vek athygli á því að það er ekki leyfilegt af hv. þm. að gefa sér það að menn haldi sig við mörkin. Þá á hann væntanlega við, hann var ekki öðruvísi skilinn, að menn gæfu upp tekjur sínar eins og mörkin segðu fyrir um en ekki eins og þau væru. Staðreyndin er sú að þegar skatturinn er gerður upp verða hinar reiknuðu tekjur, sem hafa skilað, ef ég man rétt, nálægt 10 milljörðum, nær 15 milljörðum. Þarna skilar sér því verulegur hluti til viðbótar og engin ástæða til að ætla það að menn séu að fara þar með ranga hluti í stórum stíl þó það kunni að gerast þar eins og annars staðar.
Varðandi hátekjuskattinn þá er ljóst að þar þarf að hafa viðmiðun við launaþróun ársins á undan en að öðru leyti þá hlýtur uppgjör að fara fram eftir á. Þetta er auðvitað galli við þennan skatt. Reyndar eru þeir gallar fleiri. En niðurstaðan var engu að síður sú og samkomulag um að leggja til að hann verði settur á til tveggja ára.