Guðni Ágústsson
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Í sjálfu sér var ég ekki að gefa mér að um skattsvikara væri að ræða heldur þá staðreynd að hér er skatteftirlitið því miður mjög veikt. Með því að hafa þessi viðmiðunarmörk mun hærri miðað við tekjur þessara sjálfstæðu atvinnurekenda, sem sannarlega hafa laun á bilinu 500 þús. á mánuði og upp í 2 millj., væri líklegt að menn reyndu síður að svíkja undan skatti. Ég var sem sé að spyrja forsrh. hvort ekki væri eðlilegra að færa sönnunarbyrðina til, að menn yrðu að sanna frammi fyrir skatteftirlitinu að þeir hefðu ekki svona háar tekjur. Það mundi spara vinnu og peninga. Auðvitað er það svo að því miður búum við við of marga skattsvikara í öllum greinum atvinnulífsins. Þar held ég að fáir séu undanskildir. Það er í rauninni stærsta þjóðarmein sem við búum við hvernig árum saman er ekki reynt að stöðva þá þróun.