Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég hef sagt það áður, það hefur vakið athygli mína hve fólk sem hefur tjáð sig, almenningur sem hefur tjáð sig í fjölmiðlum, í viðtölum á götunni, hefur tekið þessum ráðstöfunum af mikilli skynsemi og mikilli sannfæringu. Ég er viss um að fólk hefur trú á því að þessar ráðstafanir muni einmitt duga. Með fullri virðingu fyrir þeim talsmönnum sem hefur verið vitnað til á Alþýðusambandsþingi í sjónvarpinu, þá hef ég enn meiri trú á almenningi í þessu sambandi. Almenningur vill að þessar ráðstafanir gangi upp. Hann vill að atvinnuleysisvofunni verði bægt frá og hann hefur trú á því að henni verði bægt frá.