Ljósatafla í þingsal

61. fundur
Miðvikudaginn 25. nóvember 1992, kl. 14:11:18 (2649)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill upplýsa að vinna við þetta verk er í höndum Íslendinga þannig að það er ekki innflutt tækni sem hér er á ferðinni. Það breytir ekki því að við reiknum með að hún sé jafngóð og sú erlenda --- ef ekki betri. Það er fyrirsjáanlegt að þessi ljósatafla, sem þingmaðurinn talar um, verður ekki komin upp í þessum mánuði. En það er talað um það nú að það verði strax upp úr áramótum eins og forseti nefndi áðan.