Virðulegi forseti. Ég ætla að leyfa mér að beina fsp. til hæstv. umhvrh. sem hljóðar svo:
,,Hefur komið til álita að flytja Veiðimálastofnunina út á landsbyggðina? Ef svo er, telur ráðherra koma til greina að stofnunin verði flutt til Austurlands?``
Ríkisstjórnin hefur lýst vilja sínum til að flytja þær ríkisstofnanir út á landsbyggðina sem til þess þykja henta og styrkja þannig byggðina og e.t.v. færa viðkomandi starfssvið nær þeim aðstæðum sem verið er að fjalla um. Tengsl veiðistjóraembættisins við veiðieftirlit með hreindýraveiðum er náið og gæti bent til þess að hentugt væri að flytja embættið austur á land ef ráðherra og ríkisstjórn telja það heppilega ráðstöfun.
Embætti veiðistjóra er ekki mannfrekt og umfangsmikið svo telja verður að það henti vel til flutnings. Einnig mætti færa rök fyrir því að um hugsanlegan sparnað gæti verið að ræða. Ef við lítum aðeins á frv. til laga um vernd, friðun og veiðar á viltum fuglum og viltum spendýrum er auðvelt að sína fram á tengsl veiðistjóraembættisins við hreindýraráð og starfsemi þess. Ef við skoðum aðeins 4. gr. fyrst, með leyfi forseta:
,,Umhvrh. skipar veiðistjóra að fengnum tillögum dýranefndar. Veiðistjóri skal vera líffræðingur með sérþekkingu er nýtist honum í starfi.
Veiðistjóraembættið hefur umsjón með og stjórnar þeim aðgerðum af opinberri hálfu sem ætlað er að hafa áhrif á stofnstærð og útbreiðslu villtra dýra eða tjón af þeirra völdum . . . ``
Ef við lítum síðan á 14. gr., með leyfi forseta:
,,Telji veiðistjóraembættið að hreindýrastofninn þoli veiði og æskilegt sé að veiða úr honum getur umhvrh. sett reglugerð um veiðar á hreindýrum. Í reglugerðinni verði kveðið á um tilhögun og framkvæmd veiðanna og gjald fyrir veiðiheimildir. Skal hluti arðs af hreindýraveiðum renna til rannsókna á hreindýrum en hluti til sveitarfélaga þar sem hreindýr ganga. Ráðherra ákveður árlega fjölda, kyn og aldur þeirra dýra sem fella má úr hverri hjörð í samræmi við tillögur veiðistjóraembættisins.``
Umhvrh. hefur sett reglur um stjórn hreindýraveiða og þar segir að stofna skuli sérstakt hreindýraráð. Í það eru skipaðir menn m.a. frá Búnaðarsambandi Austurlands og Sambandi sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi. Hreindýraráði er heimilt að semja við tiltekna aðila um skrifstofuhald fyrir ráðið þar sem sala veiðileyfa og önnur starfsemi á vegum ráðsins geti farið fram. Ef hentugra þykir getur ráðið sjálft starfrækt slíka skrifstofu.
Í 10. gr. segir: ,,Hreindýraráð sér um árlegt uppgjör tekna og gjalda vegna reksturs, sölu veiðileyfa og hreindýraafurða og vegna leyfisgjalda . . .
Umhvrh. ákveður árlega, að fengnum tillögum veiðistjóraembættis og hreindýraráðs, hve stórum hluta arðs skuli varið til rannsókna á hreindýrastofninum, sbr. 5. gr. og greiðir hreindýraráð þá upphæð inn á reikning veiðistjóraembættisins.`` Framangreint sýnir fram á tengsl veiðistjóraembættisins og hreindýraráðs og ætti starfsemin þess vegna að geta sameinast og veiðistjóraembættið flust austur á land.