Þingsályktunartillaga um undirbúning hálfrar aldar afmælis lýðveldisins 1994

64. fundur
Fimmtudaginn 26. nóvember 1992, kl. 14:06:50 (2732)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Vegna orða hv. þm. væntir forseti þess að tækifæri gefist til að ræða þessi mál og tekur undir það að reisn verði yfir því þegar sú umræða fer fram og eins hvernig að þessum málum verður staðið.