Afgreiðsla frumvarps um dráttarvexti

66. fundur
Fimmtudaginn 26. nóvember 1992, kl. 17:06:48 (2766)

     Geir H. Haarde :
    Virðulegi forseti. Það hefur gengið á ýmsu við þessar atkvæðagreiðslur í dag. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka stjórnarandstöðunni og þeim forseta sem nú situr fyrir lipurð og gott samstarf við að koma málum hér áfram í dag.