Ólafur Þ. Þórðarson
(um þingsköp)
:
Herra forseti. Ekki veit ég hvað mikið er að marka það sem kemur frá einstökum forsetum og er dreift til þingmanna sem upplýsingar um það sem á að taka fyrir, en ég stóð í þeirri meiningu að hér ætti að fara fram atkvæðagreiðsla. Ég vissi ekki til þess að hér ætti að vera kvöldfundur. Ég undrast það nokkuð svo ekki sé meira sagt hvers vegna ekki er gert hlé á þessari umræðu og sú atkvæðagreiðsla látin fara fram sem talað var um, nema forsetar hafi tekið ákvörðun um að hætta við þá atkvæðagreiðslu og þeim upplýsingum hafi verið dreift til þingmanna. Ég tel það dálítið sérstætt ef staðið er í því að dreifa svona miðum til þingmann eins og gert var í þessu tilfelli ef ekki er hægt að taka neitt mark á þeim.
Í beinu framhaldi af þessu held ég að það sé hollt fyrir forseta þingsins að minnast þess að nú eru ekki svo ýkja margir þingdagar eftir til jóla. Ef svo fer að Svisslendingar fella samninginn, ekki það að Svisslendingar séu að taka ákvarðanir fyrir okkur Íslendinga eins og hér hefur komið fram, þá er þetta mál sem mestan tíma hefur tekið á þessu haustþingi út af borðinu í þeirri mynd sem það hefur verið rætt. Þess vegna undrast ég það hvers vegna ekki er reynt að koma áfram þeim stjfrv. sem stóð til að klára og þó sérstaklega einu frv. (Gripið fram í.) --- Er atkvæðagreiðslan búin? ( Gripið fram í: Já, já, um vextina og lánskjörin.) ( GHH: Það er orðið að lögum.) Aldrei þessu vant gerast þau stórtíðindi hér að hv. þm. Geir H. Haarde grípur fram í, rýfur friðinn og fer með rétt mál eftir því sem þingheimur tjáir. Þá hefur mín athugasemd verið óþörf að öllu öðru leyti en því að af því að ég hef mikla trú á Svisslendingunum að þeir felli þetta, þá hefði ég talið að ekki sé nauðsyn að halda áfram kvöldfundi í það minnsta út af því máli sem hér er á dagskrá, því að það er margt sem við þurfum að ræða og greinilegt að stjórnarskrármálið nýtur ekki vinsælda af þeirri ástæðu einni að það þýðir alþingiskosningar ef það yrði samþykkt.