Stjórnarskipunarlög

66. fundur
Fimmtudaginn 26. nóvember 1992, kl. 19:10:09 (2795)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Hv. þm. hefur réttilega sagt frá því að hann hefur beint því til mín hvort ekki yrði gert hlé á þingfundi. Sá forseti, sem nú er í forsetastól, lét bera það undir forseta þingsins hvort samningar hefðu verið gerðir um fundahaldið og fékk þau svör að samið hefði verið um það að umræðan héldi áfram þangað til henni yrði lokið. Ég veit ekki um annað en að þessir samningar hafi verið gerðir og að þá ber að virða.