Finnur Ingólfsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. svörin. Ég er honum sammála. Ég hef grun um að á þessu geti orðið breyting. Menn verða auðvitað sjá til með það. Þá er spurningin sú: Hefur verið leitað til viðkomandi fagfélaga um álit þeirra á þessum hlutum? Ég þekki það ekki vegna þess að ég hef ekki tekið þátt í störfum hv. menntmn. Hins vegar er alveg rétt hjá hæstv. menntmrh. að þetta gildir um marga fleiri aðila en viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Þetta gildir auðvitað um allar þær stéttir sem njóta lögverndaðra starfsheita. Ég hygg að svo sé. Þær stéttir sem ekki hafa fengið löggildingu eða undirgengist þær faglegu kröfur geta ekki nefnt sig þessum fagnöfnum. En ég held, hæstv. menntmrh., að að þessu þurfi að hyggja.