Stjórnarskipunarlög

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 14:04:04 (2934)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Hér hefur það komið fram hjá hv. 6 þm. Suðurl. að hæfilegur vinnutími til að fara

yfir það frv. sem verið var að vísa til ríkisstjórnarinnar sé aðventan. Það bendir því allt til að þeir yrðu að taka jólin í þetta ef við vísuðum því til ríkisstjórnarinnar. Ég legg eindregið til að það verði ekki gert og segi því nei.