Samkeppnislög

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 14:11:48 (2937)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Vegna þessarar makalausu yfirlýsingar hv. 4. þm. Austurl. vil ég benda á að við erum hér að greiða atkvæði um samkeppnislagafrv. sem væntanlega á að gilda afar lengi. Hér er ekki verið að fjalla um þann mann sem nú gegnir stöðu viðskrh. þótt ég skilji mætavel að hv. þm. búist við því að hann muni gegna því starfi mjög lengi.