Samkeppnislög

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 15:06:16 (2953)

     Geir H. Haarde (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Ég vildi eingöngu vekja athygli á því að XI. kaflinn er búinn og 52. gr. er í XII. kafla þannig að ég vænti þess að allir sem skrifa upp á nál. efh.- og viðskn. treysti sér nú til þess að standa að brtt. sem þeir hafa sjálfir flutt.