Samkeppnislög

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 15:11:07 (2954)

     Kristinn H. Gunnarsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Mig langaði til að vekja athygli á því að það hefur komið fyrir áður að menn hafa ekki stutt á hnapp eins og þeir ætluðu sér og synjað hefur verið um leiðréttingu ef búið hefur verið að lýsa úrslitum. Hér varð breyting á, heyrðist mér. Ég geri í sjálfu sér ekki athugasemd við það en óska eftir því að forseti gefi út hvort skuli gilda.