Samkeppnislög

69. fundur
Fimmtudaginn 03. desember 1992, kl. 15:17:48 (2956)

     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Það eru margir refilstigarnir í þessum langa lagabálki. Ég sé ekki betur en þessi 60. gr. tengist lögunum almennt og sé vísað til þeirra í heild sinni, þar á meðal til brota og refsiákvæða og með vísan til afstöðu minnar til XI. kafla segi ég nei.