Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
(andsvar)
:
Frú forseti. Það var enginn ágreiningur þegar samningskröfur Íslands voru mótaðar eftir Óportó-samkomulagið. Þær voru settar fram af utanrrn. með fullu samkomulagi við sjútvrn. og ég veit að hv. þm. hljóta að gera sér grein fyrir því að við hefðum ekki farið að ræða --- og ég veit að utanrrn. hefði ekki sett fram af sinni hálfu þá ósk að ræða um skipti á veiði gegn veiði ef það hefði ekki haft þá skoðun á þeim tíma að Óportó-samkomulagið rúmaði það að slíkar kröfur væru settar fram af Íslands hálfu.