Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég sé enga ástæðu til þess að halda áfram karpi um þetta við hv. þm. Halldór Ásgrímsson. Að því er mig varðar sem utanrrh. og aðila að þessum samningum, þá leita ég að sjálfsögðu til sjútvrn. um faglegt mat á slíkum hlutum. Það segir sig sjálft og það verða að teljast eðlileg vinnubrögð.
Þegar hv. þm. vitnar til þess að þessir stuðlar geti lýst breytilegu verðmætamati, þá er svarið við því já. Þeir eru endurnýjaðir og endurmetnir. Þeir stuðlar sem ég vitnaði til frá 28. júlí endurspegla meðalverð og verðþróun á fiskveiðiárinu.
En ég legg áherslu á það fyrst og fremst að þessi rök duga ekki, hv. þm., til þess að segja að við hefðum átt að meta þetta með einhverjum markaðsprísum. Þetta er sá mælikvarði sem sjútvrn. notar. Evrópubandalagið notar samsvarandi stuðla. Þeir eru öðruvísi en þetta eru ekki verri mælikvarðar en hverjir aðrir og breyta engu um gagnkvæmnina sem við vorum að deila um.